Stuð og puð

Útivistarveisla - upphitun fyrir Bræðsluhelgina

Harka og lúxus haldast í hendur í þessu fjögurra daga ferðalagi um Víknaslóðir sem endar á Borgarfirði á föstudeginum fyrir Bræðslu. 20 pláss eru í boði í deilda hjóla- og gönguferð. Með hverju plássi fylgir miði á Bræðslutónleikana og Föstudagsforleik á Já Sæll!

Ferðin er seld í samstarfi Tanna Travel og Fjord Bikes

Dagsetning: 21. - 24. júlí

Verð: 185.000,- kr. á mann

Almennt um ferðina

Ferðin fer hinn hefðbundna hring um Víknaslóðir; Frá Borgarfirði til Breiðuvíkur, Húsavíkur, Loðmundarfjarðar og svo aftur til Borgarfjarðar.

Hægt er að velja um tvo hópa - hjólahóp og gönguhóp - sem fara mismunandi leiðir yfir daginn en enda saman í skála um kvöldið. Á hverju kvöldi verður íburðamikil matreiðsla í boði einkakokks hópsins og á morgnana mun ilmandi morgunmaturinn bíða okkar.

Þegar heim í Borgarfjörð er komið heldur veislan áfram með Föstudagsforleik í Já Sæll og sjálfa Bræðsluna á laugardeginum.

Ferðin er fyrir vant útivistarfólk sem lætur ekki deigan síga og er tilbúið til að fara út fyrir þægindarammann í leit að ævintýri.

Hvað er innifalið

  • Gisting í skálum Ferðarfélags Fljótsdalshéraðs

  • 3 morgunverðir

  • Nesti yfir daginn (pakkað frá morgunverði)

  • 3 kvöldmáltíðir

  • Leiðsögn

  • Trúss (1 taska á mann)

  • Samgöngur frá mætingu að byrjunarstað ferðar og frá lokum ferðar að mætingarstað

  • 1 Miði á Bræðslu fyrir hvern þátttakanda

  • 1 Miði á föstudagsforleik (fyrri) fyrir hvern þátttakanda

  • Hleðsla á rafhjólum á meðan ferð stendur

Hvað er ekki innifalið

  • Áfengir drykkir

  • Hjólaleiga

  • Samgöngur til og frá Borgarfirði

  • Gisting á Borgarfirði fyrir eða eftir ferð

Takið með

  • Svefnpoka og uppáhalds koddann

  • Viðeigandi fatnað fyrir veðuraðstæður

  • Viðeigandi skóbúnað

  • Eigið nesti umfram það sem í boði verður (orkustykki, nammi o.þ.h.)

  • Hleðslutæki fyrir rafhjól ef við á

  • Viðeigandi öryggisbúnað. Í hjólaferðinni er hjálmaskylda.

Veldu hópinn þinn

Skilmálar

Lágmarksfjöldi í ferðina er 12 manns. Ef lágmarksfjöldi næst ekki verður ferðinni aflýst og þátttakendum endurgreitt.

Tónleikamiðar sem fylgja með seldum plássum í ferðina fyrnast ekki þó ferðin sé ekki farin ef ekki næst lágmarksþátttaka. Að sama skapi fást tónleikamiðar ekki endurgreiddir.

Við mælum með að koma upp tjaldi eða bíl á tjaldsvæði fyrir ferðina ef ætlunin er að gista þar um helgina.