Stuð og Puð
Hjólahópur
Hjólahópurinn ferðast af frelsi um skemmtilegustu stíga og leiðir Víknaslóða sem Fjord Bikes hefur farið um síðastliðin sex ár. Vegna þess að við ferðumst mun hraðar yfir heldur en gönguhópurinn er farnar ýmsar fléttur og slaufur til að nýta tímann sem best og fá þátttakendur fleiri en eitt tækifæri til að annars vegar takast á við tæknilega krefjandi kafla og hins vegar njóta flæðisins sem leiðirnar á Víkum bjóða upp á.
Leiðsögumenn: Árni Magnús og Oskar Wilk
Árni Magnús hefur boðið upp á fjallahjólaferðir á Borgarfirði síðan árið 2021. Einnig stendur hann fyrir stígagerð og uppbyggingu á sjálfbærum stígakerfum. Hann og fleiri unnu að því að búa til fyrstu fjallahjólaleiðina á Borgarfirði í landi Hafnar. Árni er fæddur og uppalinn í Kópavogi en hefur verið leiðsögumaður á Víkum síðan 2012, bæði á fótum og hjóli og þekkir svæðið eins og lófann á sér. Hann flutti alfarið til Borgarfjarðar árið 2020.
Oskar Wilk er fjallahjólagarpur og stígagerðarmaður. Fæddur og uppalinn í Póllandi en bjó um tíð í Færeyjum þar sem hann var hluti af hóp sem vann að því að koma á fót fjallahjóla stígakerfi nálægt Torshavn. Hann flutti síðan til Íslands og hefur gefið mikinn tíma í að prófa leiðir og búa til stíga, meðal annars nýju fjallahjólaleiðina á Borgarfirði.
Ferðarlýsing
Dagur 1
Hópurinn byrjar daginn á því að fara upp í Brúnuvíkurskarð og taka nýju hjólaleiðina niður að Höfn. Þaðan förum við veginn upp á Gagnheiði og upp í Kjólsvíkurskarð. Frá Kjólsvíkurskarði er farin leið 21 niður að Breiðuvíkurskála.
Vegalengd: 20km
Hækkun: 1000m
Dagur 2
Rólegri byrjun á deginum fyrir hópinn, við förum veginn frá Breiðuvík til Húsavíkur yfir Víknaheiði og tökum hring þar sem við förum yfir Nesháls og niður frábæra leið um Grjótbrúnir niður að vegi í Loðmundarfirði og svo til baka yfir Nesháls til Húsavíkur.
Vegalengd: 29km
Hækkun: 1300m
Dagur 3
Við byrjum daginn á að fara til baka upp Húsavíkurheiði og förum niður að Þverárbrú á Borgarfirði. Þaðan förum við upp Kækjudal að Kækjuskörðum. Efsta hluta af leiðinni upp að skörðum þarf að leiða eða bera hjólin og oft er til staðar skafl efst. Verðlaunin eru nær óbrotið rennsli niður 700 hæðarmetra að Klyppstaðaskála í Loðmundarfirði.
Vegalengd: 30km
Hækkun: 1100m
Dagur 4
Hópurinn leggur aftur í Kækjuskörðin - öfuga leið - til að komast aftur til Borgarfjarðar. Þar njótum við góðs af deginum áður þar sem við munum þekkja aðstæður í Kækjudal. Til að nýta daginn hjólum við ferð upp í átt að Sandaskörðum eða tökum hring í nýju hjólaleiðinni - eða bæði!
Vegalengd: 25+km
Hækkun: 1000+m