Stuð og Puð
Gönguhópur
Gönguhópurinn fer sígildar leiðir um Víknaslóðir og bætir við nokkrum vel völdum slaufum til að toppa tinda og heimsækja leynda dali.
Leiðsögumaður: Karolina Szymczyk
Karolina kom til Íslands frá Póllandi fyrir átta árum síðan og hefur búið á Borgarfirði síðastliðin fimm ár. Á þeim tíma hefur hún ferðast langt og breitt um Víknaslóðir og þekkir nær hvern einasta krók og kima.
Hún kláraði fjallamennskunám FAS árið 2024 og hefur unnið sem leiðsögumaður á Borgarfirði síðastliðin tvö ár og hefur komið ófáum einstaklingum upp á borgfirska tinda á þeim tíma. Hún rekur einnig bakaríið Góðan Deig sem stendur fyrir reglulegum kaffitímum yfir veturinn og býður upp á brauð-áskrift.
Ferðarlýsing
Dagur 1
Hópurinn byrjar daginn á því að fara yfir Brúnuvíkurskarð og Súluskarð til Hvalvíkur. Þaðan er farið á topp Glettings og niður í Kjólsvík áður en við mætum aftur hefðbundinni leið til Breiðuvíkur.
Vegalengd: 16km
Hækkun: 1000m
Dagur 2
Dagurinn byrjar með göngu til Litluvíkur og upp Litluvíkurdal. Þaðan gefst okkur möguleiki á að ganga upp á Leirhnjúk. Þaðan förum við aftur niður og um Herjólfsdal til Húsavíkur.
Vegalengd: 18km
Hækkun: 1200m
Dagur 3
Við byrjum daginn á að fara upp Nesháls. Þaðan er farið upp á topp Skælings. Við förum niður sömu leið og förum vestur með Grenishólum að Fitjum og þaðan til Klyppstaðaskála
Vegalengd: 20km
Hækkun 900m
Dagur 4
Við göngum aftur upp stikuðu leiðina að Fitjum og þaðan yfir Kækjuskörð. Farið er í leiðinni upp á síðasta tind ferðarinnar, Þriggjahnjúkafjall. Þaðan er gengið niður Kækjudal að Þverárbrú. Svo er farið með bíl að tjaldsvæði.
Vegalengd: 16km
Hækkun: 900m